Ég heiti Eva María og rek bókhaldsþjónustuna Bókað mál.
Ég hef starfað sem viðurkenndur bókari síðan 2005 sbr lög um bókhald nr 145/1994. Auk þess er ég með BSc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Ég hef yfir 20 ára reynslu á sviði bókhalds, launavinnslu og ársuppgjörs. Meðal viðskiptavina minna eru fyrirtæki, félagasamtök, íþróttafélög og einyrkjar.